KLP plastefni

Wow! 50 ára framleiðsluábyrgð.

Frá árinu 1975 hefur Lankhorst Recycling boðið vörur og þjónustu úr enndurunnu plasti af mikilli uppfinningasemi með það markmið að stuðla að “grænni” og sjálfbærni. Undir vörumerkinu KLP®. Markmiðið hefur verið að selja fullunnar vörur eins og til dæmis brýr sem ná yfir 8,5 metra án undirstöðu, samansetta hluta fyrir göngustíga er ná yfir 5 metra, flotbryggjur, útihúsgögn svo eitthvað sé nefnt. Ennfremur að framleiða undir þessu merki pallaefni, veggklæðningar, hafnartengdar vörur og fleira eins og finna má á heimasíðu Lankhorst Recycling hér á síðunni.

KLP® plastvörurnar stuðla að betra umhverfi þar sem þær eru úr endurunnu efni. Engin aukaefni eru notuð þannig að vörurnar frá KLP “leka” ekki neinum eiturefnum út í umhverfið. Auk þess sem hægt er ef þarf að endurvinna plastið frá KLP®.

Á löngum starfstíma Lankhorst hefur verið þróuð mikil þekking og reynsla sem nýtist í framleiðslutækni, efnissamsetningu og notkunarmöguleikum. Vörurnar frá KLP® rotna ekki og það þarf ekki að viðhalda þeim með vafasömum efnum. Það flísast ekki úr plastinu sem er mun stamara en viður – og jafnvel þó það sé blautt. Efnið er með 50 ára framleiðslu ábyrgð.

 

Myndband frá Vatnshelli

Umhverfistofnun valdi KLP plstefni í útsýnispall í Vatnshelli á Snæfellsnesi.

Plastefni sem býður upp á fjölda smartra lausna

Pallur úr KLP plastefni sem lagður var yfir tjörn

Það er leikur einn að vinna með vörurnar frá KLP®

Hægt er að sníða, saga og skrúfa í það eins og timbur