VER ehf kynnir
Ecoraster jarðvegsgrindur sem framleiddar eru af Purus Plastics GmbH í Þýskalandi. Grindurnar eru framleiddar úr endurunnu plasti eins og t.d. innkaupapokum
200m2 bílastæði með Bloxx, unnið í júlí 2020
Bjarnarfoss og Svöðufoss á Snæfellsnesi
Bílastæði við Laufskálavörðu, framkvæmt í nóvember 2019
Tekið 16 febrúar 2020, tveimur dögum eftir óveðrið
Ecoraster jarðvegsgrindur

Hugsum um viðkvæma, íslenska náttúru
– Ecoraster jarvegsgrindurnar taka í sig hita en geisla honum ekki frá sér eins og malbik.
– Grindurnar stuðla að eðlilegri grunnvatnsstöðu og draga úr hættunni á að lækir myndist í göngustígum og eyðileggi land.
– Hægt er að endurvinna grindurnar.
Með því að nota Ecoraster jarðvegsgrindur sem taka í sig hita í stað þess að geisla honum frá sér eins og malbik. Gindurnar stuðla að eðlilegri grunnvatnsstöðu.
Ecoraster jarðvegsgrindur stuðla að betri umgengni um íslenskar náttúruperlur
Mývatn er eitt af mörgum svæðum þar sem Ecoraster er notað í göngustíga
Umhverfis- og náttúruvænar ástæður!
Helstu ástæður fyrir að nota Ecoraster?
Flutningur og geymsla
Jarðvegsgrindurnar eru auðveldar í flutningi. Þær staflast vel og eru afgreiddar á brettum sem hámarkar geymslupláss og lækkar flutningskostnað.
Létt að leggja
Hver jarðvegsgrind er sett saman úr 12 einingum. Heildarstærð grindar er 1,3 ferm. Þyngd er 6-10 kg pr. ferm – mismunandi eftir tegundum. Einn maður getur lagt allt að 100 fermetrar á klukkustund. Auðvelt að saga eða sníða. Ekkert ryk.
Útlit og áferð
Hægt að fylla grindurnar með mulningi, skrautmöl eða lituðum sandi. Einnig er hægt að fá skrautmöl sem er límd saman með sérstöku lími og auðvelt er að rækta gras í hólfunum eða fylla þau með kurli.
Sterkar og endingargóðar
Ecoraster jarðvegsgrindurnar eru einstaklega sterkar, en þær þola allt að 300 t þunga á ferm. (E50 ófylltar) og 20 t öxulþunga. Ecoraster jarðvegsgrindurnar eru endingargóðar og slitna lítið. Efnið í grindunum rennur ekki á brott í rigningum. Þessi staðreynd getur sparað háar fjárhæðir.
Öruggar læsingar
Grindurnar eru með öruggar og nettar læsingar. Það er auðvelt að losa grindurnar í sundur og nota á nýjum stað.
Hagkvæmt og umhverfisvænt
Innbyggðar þenslutengingar tryggja stöðugra yfirborð og þyngd dreifist jafnt á flötinn. Ekki þarf að þjappa jarðveginn og minni þörf á berandi undirlagi. Ecoraster jarðvegsgrindur menga hvorki grunnvatn eða jarðveg.