

Vottanir ECORASTER
Gæði, öryggi og umhverfisábyrgð
ECORASTER er þróað og framleitt í Þýskalandi samkvæmt ströngum gæðakröfum. Vörurnar eru prófaðar af óháðum vottunaraðilum og standast ströngustu staðla þegar kemur að burðarþoli, efnaöryggi og umhverfisáhrifum.
Ecoraster er með 20 ára framleiðsluábyrgð.
Gæðavottanir og burðarprófanir
-
TÜV CERT vottun: Vottar öflugt burðarþol ECORASTER samkvæmt DIN 1072 – burðarþol allt að 20 tonna öxulþunga.
-
DIN EN 124:2011: Há burðargeta fyrir bílastæði, vegi og geymslusvæði.
-
DIN 14090: Samþykkt fyrir neyðarbílaumferð.
-
RAL-GZ 806: Þýsk vottun fyrir tæknilegt öryggi og endingargæði.
-
DIN 18130: Prófað fyrir gegndræpi og vatnsrennsli.
-
Hver eining (33×33 cm) með 36 læsingum/m² og burðarþol upp í 800 tonn/m².
Umhverfisvottanir og sjálfbærni
- ISO 14001 – Umhverfisstjórnunarkerfi: Staðfesting á að framleiðslan sé vistvæn og hámarki notkun endurvinnanlegra efna.
-
100% endurunnið LD-PE plast
LD-PE plastið er endingargott, sveigjanlegt og umhverfisvænt. Það er:
-
Högg- og frostþolið (–50°C til +90°C)
-
UV-varið og veðurþolið
-
Mjög efnaþolið (salt, sýra, olía, ammoníak)
-
Endurvinnanlegt og mengar hvorki jarðveg né grunnvatn
Þetta gerir LDPE að öruggu og umhverfisvænu efni fyrir notkun á viðkvæmum svæðum – t.d. við vötn, á náttúruverndarsvæðum, á bújörðum og í snertingu við fóður eða matvæli.
-
-
EPD – Umhverfisvottun: Gefin út af The International EPD® System, samkvæmt ISO 14025 og EN 15804.
-
OECD 202:2004 & DIN 38412: ECORASTER er vottað sem umhverfishlutlaust – mengar hvorki jarðveg né grunnvatn.
-
DIN EN 60068-2-5: Vottað fyrir UV-þol og veðurþol.
Efnaöryggi og samræmi við reglugerðir
-
REACH & SVHC vottun: ECORASTER inniheldur engar hættulegar eða skaðlegar efnisleifar yfir viðmiðunarmörkum.
-
Prófað fyrir:
-
Þungmálma (t.d. blý, kadmín, kvikasilfur)
-
Logavarnarefni og plastmýkiefni (phthalates)
-
Halógenefni – staðfest < 0,1% (Baubook skráin)
-
-
Próf unnin af ISO 17025 vottuðum rannsóknaaðila
Aukavottanir og ábyrgð
- ISO 9001 – Gæðastjórnunarkerfi: Tryggir stöðuga framleiðslu með áherslu á gæði og ánægju viðskiptavina.
- ISO 50001 – Orkustjórnun
- 20 ára framleiðsluábyrgð
- NATO samþykkt (E50) – MOD / 9330-99-858-1406
Viltu fá aðgang að vottorðum?
Við getum sent þér nánari upplýsingar og vottorð, endilega hafðu samband: [email protected]
Grindur
Ecoraster grindurnar eru LDPE framleiddar með því að endurvinna “rétt” plast sem hefur áður gengt öðrum tilgangi.
Eru sterkar, þola 20 tonna öxulþunga tómar.
Þær eru endurvinnanlegar
Menga ekki umhverfið
Eru léttar og auðveldar í flutningi
Hleypa aðkomuvatni niður í jarðveginn
Styrkja jarðveginn
Fjölbreyttur notkunarmöguleiki
Eru með 20 ára framleiðsluábyrgð
1 kg af plasti er unnið úr 2,5 kg af olíu. Purus Plastic tekur á móti flokkuðu umbúðarusli (þ.e. filmu og plastpokum) og gerir nýja vöru úr notuðu hráefni. Með þessu fáum við hráefni án þess að auka álagið á komandi kynslóðir og umhverfið
